Market survey - rent of office premises in the capital area
TenderZenith matches this tender's eligibility criteria against your company profile to calculate a deterministic qualification score and identify potential disqualifiers.
A structured breakdown of scope, eligibility requirements, submission steps, and key conditions — extracted directly from the official notice.
Sign in to unlock Bid Fit & AI Opportunity Intelligence
TenderZenith calculates a personalized qualification score against your company profile and extracts structured intelligence from tender documents with your 7-Day Pro Trial (No Credit Card Required).
Description & Project Overview
Til baka Markaðskönnun – leiga skrifstofuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu Númer: 6330309 Útboðsaðili: FSRE - Framkvæmdasýslan Ríkiseignir Tegund: Leiguhúsnæði, Markaðskönnun (RFI) Auglýst: 29.10.2026 kl. 13:00 Skilafrestur 26.11.2026 kl. 13:00 Skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), f.h. ríkissjóðs, stendur fyrir markaðskönnun vegna mögulegrar langtímaleigu á nútímalegu, verkefnamiðuðu og sveigjanlegu skrifstofuhúsnæði fyrir ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu . Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til allt að 25 ára og afhent fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Sjá nánar viðauka I og II um viðmið um vinnuumhverfi og viðmið í húsnæðismálum. Staðsetning, aðgengi og húsrýmisþörf Gerð er krafa um að staðsetningin sé á höfuðborgarsvæðinu, innan þéttbýliskjarna og í nálægð við almenningssamgöngur. Aðilar skulu gera grein fyrir aðgengi að almenningssamgöngum við húsnæðið, þar á meðal fjarlægð að næstu biðstöðvum, hvaða strætóleiðir þjóna þeim og ferðatíðni viðkomandi leiða á annatímum að morgni og síðdegis. Húsnæðið skal hafa gott aðgengi fyrir alla notendur, þar á meðal fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi, auk nægra bílastæða. Kostur er ef húsnæðið er staðsett í nálægð við aðra þjónustustarfsemi. Húsnæðið skal bjóða upp á möguleika á sameiginlegri móttöku, mötuneyti og fundaaðstöðu. Tekið verður til greina húsnæði sem hægt er að taka á leigu og afhenda í áföngum. Áætluð húsrýmisþörf er 5.000 – 10.000 m². Æskilegt er að húsnæðið verði tilbúið til afhendingar, eftir atvikum í áföngum, innan 12 – 24 mánaða frá undirritun leigusamnings. Nauðsynlegt er að upplýst sé um mögulegan afhendingartíma þess húsnæðis sem er boðið. Tilgangur og framhald markaðskönnunar Í markaðskönnun þessari er óskað eftir upplýsingum frá markaðnum um mögulegt framboð húsnæðs. Að markaðskönnun lokinni verður tekin ákvörðun um næstu skref. Fyrirspurnir vegna markaðskönnunarinnar skulu sendar í gegnum útboðskerfið TendSign. Frestur til að senda inn fyrirspurnir rennur út 18. nóvember 2026 og frestur FSRE til að svara þeim er til og með 23. nóvember 2026. Skilafrestur : Óskað er eftir að neðangreindar upplýsingar berist í gegnum útboðskerfið TendSign, eigi síðar en kl. 13:00, þann 26. nóvember 2026 . Hlekkur á markaðskönnuna má finna hér: https://tendsign.is/doc.aspx?ID=245625&B=6aohG7a82IUA Merkja skal upplýsingarnar; nr. 6330309 – Deigla – Leiguhúsnæði Markaðskönnun þessi er liður í undirbúningi FSRE vegna mögulegrar leigu á sameiginlegu skrifstofuhúsnæði fyrir ríkisaðila á höfuðborgarsvæðinu. Könnunin er annars vegar ætlað að vera undanfari fyrirhugaðrar auglýsingar eftir leiguhúsnæði, en leiga fasteigna er almennt undanþegin gildissviði laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, sbr. a-lið 1. mgr. 11. gr. laganna. Hins vegar áskilur FSRE sér rétt til þess að nýta upplýsingar og niðurstöður könnunarinnar, eftir því sem við á, við undirbúning og mótun mögulegs innkaupaferlis samkvæmt lögum um opinber innkaup, verði síðar ákveðið að ráðast í innkaup sem falla undir gildissvið laganna. Óskað er eftir upplýsingum frá áhugasömum aðilum um eftirfarandi: Upplýsingar um þátttakanda: Nafn fyrirtækisins eða samstarfsfyrirtækja og kennitala/–tölur Staðsetning og lýsing húsnæðis: Upplýsingum um staðsetningu þess húsnæðis sem fyrirtækið getur boðið, ásamt öðrum upplýsingum/gögnum sem sýna að húsnæðið geti hentað starfseminni Verðhugmynd: Áætlað leiguverð húsnæðis sem fyrirtækið getur boðið (kr./m²/mán). Afhendingartími: Áætlaður afhendingartími húsnæðis, miðað við mögulega undirritun leigusamnings, ásamt upplýsingum um hvort afhending í áföngum komi til greina Reynsla og hæfni: Upplýsingar um reynslu fyrirtækisins af uppbyggingu, útleigu og rekstri atvinnu-eða skrifstofuhúsnæðis. Aðrar upplýsingar: Aðrar upplýsingar, tillögur eða athugasemdir sem viðkomandi telur að geti nýst FSRE við mat á mögulegum húsnæðiskostum og undirbúning fyrirhugaðrar húsnæðisöflunar. Gögnin eru aðgengileg í útboðskerfinu Tendsign og skulu markaðsaðilar skila inn upplýsingum rafrænt í gegnum kerfið . Viðaukar: Eftirfarandi skjöl eru hluti þessarar markaðskönnunar Viðauki I – Viðmið um vinnuumhverfi 2020 Viðauki II – VMV áherslur og viðmið í húsnæðismálum Skoða nánar