Mobile housing units for the Nursing home Hlíð
TenderZenith matches this tender's eligibility criteria against your company profile to calculate a deterministic qualification score and identify potential disqualifiers.
A structured breakdown of scope, eligibility requirements, submission steps, and key conditions — extracted directly from the official notice.
Sign in to unlock Bid Fit & AI Opportunity Intelligence
TenderZenith calculates a personalized qualification score against your company profile and extracts structured intelligence from tender documents with your 7-Day Pro Trial (No Credit Card Required).
Description & Project Overview
Til baka Færanlegar húseiningar fyrir Hjúkrunarheimilið Hlíð Númer: 6087175 Útboðsaðili: FSRE - Framkvæmdasýslan Ríkiseignir Tegund: Framkvæmd, Vörukaup Útboðsgögn afhent: 16.10.2026 kl. 09:21 Skilafrestur 16.11.2026 kl. 12:00 Opnun tilboða: 16.11.2026 kl. 13:00 Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), f.h. Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, sem hér eftir nefnist kaupandi, óskar eftir tilboðum í að fullnaðarhönnun, útvegun, smíði, flutning, uppsetningu og fullnaðarfrágang færanlegs skrifstofuhúsnæðis við Hjúkrunarheimilið Hlíð í Austurbyggð 17 á Akureyri. Verkið felur m.a. í sér hönnun húseininga og kerfa þeirra, útvegun og smíði eininga, flutning þeirra á verkstað, hífingu og uppsetningu, samtengingu eininga, innri og ytri frágang, tengingu tæknikerfa við skilgreinda tengipunkta verkkaupa, prófanir og annan þann frágang sem nauðsynlegur er til að húsnæðið verði fullbúið og tilbúið til notkunar í samræmi við útboðsgögn. Öll hönnun og bygging húsnæðisins skal uppfylla íslenska staðla og reglugerðir, þ.m.t. byggingareglugerð 112/2012, lög nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustu og öryggi á vinnustöðum og reglur Vinnueftirlitsins nr. 581/1995 um húsnæði vinnustaða, ásamt áorðnum breytingum þessara laga og reglugerða. Hönnun húsnæðisins skal byggja á grundvelli algildrar hönnunar þannig að aðgengi allra er tryggt. Um er að ræða almennt útboð eins og því er lýst í 2. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL). Útboð þetta er auglýst innanlands og innan EES svæðisins. Lög um opinber innkaup má nálgast á heimasíðu Alþingis. Vakin er athygli á síðari breytingum á OIL: https://www.althingi.is/lagas/nuna/2016120.html Allar nánari upplýsingar um útboðið er að finna í útboðskerfi, TendSign.is. Hér má finna leiðbeingar um útboðskerfið, innskráningur og skil tilboða. Beinn hlekkur á útboðsgögn: https://tendsign.is/doc.aspx?MeFormsNoticeID=101837 Skoða nánar