VEU-2609-0060 Lining of sewer pipes
TenderZenith matches this tender's eligibility criteria against your company profile to calculate a deterministic qualification score and identify potential disqualifiers.
A structured breakdown of scope, eligibility requirements, submission steps, and key conditions — extracted directly from the official notice.
Sign in to unlock Bid Fit & AI Opportunity Intelligence
TenderZenith calculates a personalized qualification score against your company profile and extracts structured intelligence from tender documents with your 7-Day Pro Trial (No Credit Card Required).
Description & Project Overview
Til baka VEU-2609-0060 Fóðrun fráveitulagna Númer: VEU-2609-0060 Útboðsaðili: Veitur Tegund: Framkvæmd, Þjónusta Útboðsgögn afhent: 23.10.2026 kl. 13:00 Skilafrestur 18.01.2027 kl. 14:00 Opnun tilboða: 18.01.2027 kl. 14:00 Veitur ohf. óskar eftir þátttekendum í rammasamning Veitna vegna verkefnis: „VEU-2609-0060 Fóðrun fráveitulagna“ Með útboðinu hyggst Kaupandi koma á rammasamningi við tvo samningsaðila um þjónustu vegna fóðrunar lagna án uppgraftar. Megináhersla samningsins er fóðrun fráveitulagna, þ.m.t. lagna fyrir skólp og regnvatn. Kaupandi áskilur sér jafnframt rétt til að nýta samninginn vegna fóðrunar lagna í vatnsveitu og hitaveitu, eftir því sem þörf Kaupanda, tæknilegar forsendur, efnisval, vottanir og aðrar kröfur viðkomandi veitukerfis gera slíkt mögulegt. Þjónustan getur falið í sér vinnu við verkefni í eftirfarandi veitukerfum Kaupanda: Fráveitu, þ.m.t. skólp- og regnvatnskerfum – meginhluti samnings. Vatnsveita – eftir þörfum Kaupanda. Hitaveita – eftir þörfum Kaupanda. Þjónustan felur í sér, í heild eða að hluta, eftirfarandi verkþætti eftir eðli einstakra verkefna og veitukerfa: undirbúning lagna fyrir fóðrun, hreinsun, myndun og ástandsskoðun lagna eftir því sem nauðsynlegt er vegna fóðrunar, hönnun og val á fóðrunarlausn í samræmi við kröfur Kaupanda og aðstæður í hverju verkefni, afhendingu, uppsetningu og herðingu fóðrunarefna og annarra kerfishluta, opnun og frágang tenginga, stúta, greina og annarra tengipunkta eftir því sem við á, prófanir, gæðaeftirlit og sannprófun á fullunninni fóðrun, frágang og skil gagna um framkvæmd, efni, prófanir og rekjanleika, bráðabirgða- og hjáveitulausnir vegna reksturs veitukerfa meðan á framkvæmd stendur, eftir því sem við á, viðgerðir og staðbundnar endurnýjanir sem tengjast fóðrunarframkvæmdum, eftir því sem skilgreint er í viðkomandi verkbeiðni, og aðra sérhæfða vinnu sem nauðsynleg er til að ljúka viðkomandi fóðrunarverkefni. Ábyrgð samningsaðila felur meðal annars í sér, en takmarkast ekki við, eftirfarandi: Undirbúningsvinna vegna veitingu þjónustu t.d. skoðun teikninga og verklýsinga. Innri verkefnastjórnun Verktaka Verkstjórn Innra gæðaeftirlit verktaka Öll önnur nauðsynleg stuðningshlutverk með tilliti til verksins sem á að framkvæma Öryggisráðstafanir Rekstur og notkun nauðsynlegs upplýsingatæknikerfis til að tryggja rekjanleika allrar vinnu. Eftirfarandi þjónusta eru ekki hluti af gildisviði rammasamningsins: Viðhald búnaðar í dælu- og hreinsistöðvum. Uppsetning nýs búnaðar í dælu- og hreinsistöðvum. Almenn nýlagnavinna eða endurnýjun lagna með hefðbundnum uppgreftri, nema slík vinna sé nauðsynlegur og óverulegur fylgiþáttur við framkvæmd fóðrunarverkefnis samkvæmt verkbeiðni Kaupanda. Sjá nánari upplýsingar í útboðsgögnum. Skoða nánar