Baran – Renewal of artificial grass
TenderZenith matches this tender's eligibility criteria against your company profile to calculate a deterministic qualification score and identify potential disqualifiers.
A structured breakdown of scope, eligibility requirements, submission steps, and key conditions — extracted directly from the official notice.
Sign in to unlock Bid Fit & AI Opportunity Intelligence
TenderZenith calculates a personalized qualification score against your company profile and extracts structured intelligence from tender documents with your 7-Day Pro Trial (No Credit Card Required).
Description & Project Overview
Til baka Báran – Endurnýjun á gervigrasi Númer: 202605839 Útboðsaðili: Sveitarfélagið Hornafjörður Tegund: Vörukaup Útboðsgögn afhent: 19.10.2026 kl. 09:04 Skilafrestur 24.11.2026 kl. 14:00 Endurnýjun gervigrass í Bárunni Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Báran – endurnýjun á gervigrasi“ . Um er að ræða almennt opið útboð sem auglýst er á Evrópska efnahagssvæðinu. Tilboð skal taka til alls þess sem nauðsynlegt er til að ljúka verkinu eins og því er lýst í útboðsgögnum. Lauslegt yfirlit yfir verkið Verkið felst í kaupum, afhendingu og uppsetningu á nýju gervigraskerfi án innfylliefna í knattspyrnuhúsinu Bárunni á Höfn í Hornafirði. Innifalið í verkinu er meðal annars gervigras, niðurlögn þess, merkingar, frágangur og allt annað sem nauðsynlegt er til að skila fullfrágengnu gervigrassvæði í samræmi við útboðsgögn. Útboðið er meðhöndlað sem vöruútboð með uppsetningu og frágangi þar sem meginhluti verksins felst í afhendingu gervigrass og tilheyrandi búnaðar. Framkvæmdartími Gert er ráð fyrir að samningur taki gildi 11. desember 2026 eða við undirritun samnings . Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 9. febrúar 2027 . Verktaki skal fyrir undirritun samnings leggja fram verkáætlun sem sýnir framvindu verksins, helstu verkþætti, tímasetningar og mannafla. Útboðsgögn Til útboðsgagna verksins teljast: Útboðs- og verklýsing. Útboðsteikningar ráðgjafa. Tilboðsskrá og tilboðsblað. Skriflegar fyrirspurnir og svör sem fram koma á tilboðstíma. Útboðið fer fram rafrænt í útboðskerfinu Ajour . Öll samskipti á tilboðstíma, þar á meðal fyrirspurnir og athugasemdir vegna útboðsgagna, skulu fara fram í gegnum útboðskerfið. Frestur til að senda inn fyrirspurnir og athugasemdir er til 3. nóvember 2026 og verða svör við fyrirspurnum veitt eigi síðar en 10. nóvember 2026 . Skil og opnun tilboða Tilboðum skal skila rafrænt í gegnum útboðskerfið Ajour eigi síðar en 24. nóvember 2026 kl. 14:00 . Tilboð sem berast eftir að tilboðsfrestur rennur út verða ekki tekin til greina. Tilboð verða opnuð 24. nóvember 2026 kl. 14:00 . Þar sem um rafrænt innkaupaferli er að ræða verður ekki haldinn eiginlegur opnunarfundur. Að opnun lokinni verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum í gegnum Ajour. Bjóðendur bera ábyrgð á því að tilboð berist innan tilskilins frests og eru hvattir til að hefja skil tímanlega. Sveitarfélagið Hornafjörður áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum á grundvelli málefnalegra ástæðna og í samræmi við ákvæði útboðsgagna og laga um opinber innkaup. Opna útboðsvef Ajour Skoða nánar